19júlí

Fć aldrei nóg

af því að opna nýtt og nýtt blogg...en það er spurning um að starta enn nýju og fara að blogga eitthvað. Það er allavega nóg að blogga um þessa dagana.

En er enn að jafna mig eftir gæsunarhelgina...mínar yndislegu vinkonur og systir og mágkona komu mér svo þvílíkt á óvart og sóttu mig heim um hálf eitt á laugardaginn og ég átti með þeim YNDISLEGAN DAG og ég er svo hamingjusöm og ánægð með lífið að það er ekki eðlilegt...er enn með strengi í magana og feitan marblett eftir hagglarannSvalur

jæja ég ætla að fara að koma einhverju í verk í vinnunni...og svo er spurning um að fara að klára að redda fyrir brúðkaup...er svo róleg í tíðinni að þetta er orðið vandamál.

Á eftir að ákveða:
*matseðilinn
*lög í kirkju
*tónlist í veislu
*förðun
*alsherjar snyrting fyrir stóra daginn
*eftir að prufa brúnkuklefann...hehehe veit ekki hvort ég treysti mér í það eftir lýsingar helgarinnar
*hitta veislustjórana mína
*gera gjafalista
*senda þrjú boðskort sem eru alltaf heima á skenknum
*skila matarstelli sem ég er búin að vera með í láni í viku
...og jeminn þori ekki að telja meira upp...hefði aldrei trúað því að ég væri svona hrikalega herfilega óskipulögðÖskrandi 
Jæja kannski ég klári þetta bara allt í dag og á morgunn???
19. júlí 2006 klukkan 15:03
Kristjana Kristjánsdóttir
6 athugasemdir

Ađalvalmynd

Gagnasafn

Auglýsing

Leikur dagsins

Leit